- Auglýsing -
Klukkan hálfátta í gærkvöldi var tilkynnt um mann í annarlegu ástandi með ónæði á hóteli við Laugaveg. Hafði maðurinn stolið söfnunarbauk, sem hann var síðan að reyna að opna.
Maðurinn var handtekinn og vistaður sökum ástands í fangageymslu lögreglu. Maðurinn lét mjög illa og reyndi að sparka frá sér. Við vistun mun lögreglukona hafa fengið munnvatn / hráka í andlitið frá manninum en hann er skráður sýktur.