Það var ömurleg aðkoma Hafnfirðingsins sem kom heim í íbúð sína. Brotist hafði verið inn á heimili mannsins og innbúið stórskemmt. Lögregla var kölluð til en óljóst hvort skemmdarvargurinn hefur skilið eftir sig spor eða hvort íbúinn situr uppi með tjónið.
Lögreglan hafði í nógu að snúast. Í austurborg Reykjavíkur var kallað eftir lögreglu vegna líkamsárásar. Einn var handtekinn vegna málsins og hann læstur inni í fangaklefa þar sem hann bíður þess að verða yfirheyrður.
Mikið var um ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan náði að grípa nokkra slíka. Í miðborginni gómaði lögreglan ökumann sem grunaður er um að vera drukkinn undir stýri. Annar var svo gripinn í Garðabæ, grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Fleiri ökumenn hlutu þau örlög að vera teknir af lögreglu.
Kallað var eftir aðstoð lögregu á veitingastað í Kópavogi. Þar var gestur til vandræða. Lögreglan greip inn í málin og kom á friði.