Húsmóðir í Reykjanesbæ sem keypti sér hrossabjúgu frá Kjarnafæði var ekki par hrifinn þegar í ljós kom að eftir suðu hafði bjúgað rýrnað um næstum helming.
Upphafleg þyngd var 690 gr en fór niður í 352 gr eftir suðu, 49 prósent rýrnun. Farið var eftir öllum leiðbeiningum enda engin nýgræðingur við matargerð á ferðinni. Þetta hreinlega getur ekki talist eðlileg rýrnun. Auðvitað á sér alltaf stað einhver rýrnun en þetta er einfaldlega of mikið af hinu góða.
Húsmóðirin póstaði innleggi um bjúgað í hópana Matartips og Gamaldags matur á Facebook til þess að sýna þá miklu rýrnun sem varð á bjúganu. Maður nokkur sem tjáði sig við innleggið spurði „Bullsauðstu það í klst eða?“ Ítarlegar eldunarleiðbeiningar er að finna á umbúðunum, jafnframt því að húsmóðirin svaraði „Ég sauð það samkvæmt leiðbeiningum, enda ekki alveg óreynd í eldhúsinu.“ Margir viðruðu svo skoðun sína á því hvernig væri í raun best að sjóða bjúgu, „Það á að setja þetta í kalt vatn og láta suðuna koma upp og setja svo á lægsta.“ enn annar sagði „Til samanburðar þá hefur 1 kg af fitu 9 sinnum meira rúmmál en 1 kg af keti. Þessi bjúgu eru oft um 40% feit. Ef þau eru feitari eru þau í raun óæt“.
Með tilliti til þess að uppgefið fitumagn vörunnar á umbúðum segir að fita sé 29,6 gr í hverjum 100 gr ætti fita að vera um það bil 207 gr í þessu tiltekna bjúga sem vóg 690gr. 233 gr ættu að vera heildarmagn fitunnar í bjúganu og restin þá 457 gr. Það sýnir okkur það að ef öll fita myndi hverfa við eldun/suðu ætti varan að vega 457 gr en ekki 352 gr. Mismunurinn er því 105gr á milli þess sem bjúgað vóg eftir suðu, að því gefnu (sem gerist ekki ef eldunarleiðbeiningum er fylgt) að gjörsamlega öll fita væri farin úr kjötinu.
Það gefur því augaleið að hér er eitthvað furðulegt í gangi, sennilega mikið meira fituinnihald en gefið er upp á umbúðunum, eða varan er full af vatni.