Föstudagur 20. september, 2024
9.9 C
Reykjavik

Hrun á fylgi Sjálfstæðisflokksins og söguleg lægð – Sigmundur Davíð á sigurbraut með Miðflokkinn

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sjálfstæðisflokkurinn er í sögulegri lægð og mælist með lægsta fylgi í sitt í sögunni.  Flokkurinn mælist í nýrri könnun Maskínu með einungis 13,9 prósent og er þar með þriðji stærsti flokkurinn. Miðflokkurinn mælist vera með 15,3 prósent og Samfylkingin er með 26,5 prósenta fylgi.

Miðflokkurinn hefurt braggast mikið  frá kosningunum 2021 þegar hann fékk aðeins 5,4 prósent atkvæða og þrjá þingmenn. Einn þingmaðurinn, Birgir Þórarinsson, gerðist liðhlaupi og gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn og eftir voru tveir. Nú stefnir í að flokkurinn fái 10 þingmenn. Þetta yrði mikill sigur fyrir Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins, og að sama skapi er enn og aftur undirstrikað að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur misst tökin.

Vinstri grænir eru enn á mörkum þess að missa alla sína þingmenn. Flokkurinn mælist vera með 4,6 prósenta fylgi. Helsti samkeppnisaðili þeirra, Sósíalistaflokkurinn er aftir á móti inni á þingi með rúmlega 5 prósenta fylgi. Ekki er marktækur munur á flokkunum tveimur. Aðrir flokkar eru á svipuðu róli og verið hefur undnfarið.

Könnunin sem var gerð dagana 7. til 27. ágúst. Það var Stöð 2 sem fyrst sagði frá könnuninni.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -