Engin ákæra hefur verið gefin út í hryðjuverkamálinu svokallaða, en gæsluvarðhald rennur út 8. desember.
Sveinn Andri Sveinsson er lögmaður annars sakborningsins segir í samtali við Fréttablaðið að það myndi vekja furðu ef gefin verði út ákæra fyrir tilraun til hryðjuverka.
Kom fram að í síðustu viku sagði héraðssaksóknari að rannsókn málsins væri lokið; það er nú hjá saksóknara, sem taka mun afstöðu til þess hvort mennirnir tveir verði ákærðir.
Sveinn Andri segir að sjálfur hafi hann ekkert heyrt frá ákæruvaldinu varðandi ákæru í málinu og segir að mögulega verði gæsluvarðhaldið lengt:
„Þeir gætu haft þá inni til 14. desember, þá eru tólf vikur liðnar. Þeir þurfa að gefa út ákæru fyrir tólftu vikuna, svo gætu þeir mögulega framlengt gæsluvarðhaldið ef ákæran er þess efnis. Það er erfitt að ráða í það hvað ákæruvaldið ætlar að gera. Það myndi sæta furðu ef þeir gefa út ákæru fyrir tilraun til hryðjuverka. Við verðum bara að bíða og sjá.“
Sveinn Andri segist vera í góðu sambandi við manninn:
„Við tölum reglulega. Hann er að taka þessu öllu af merkilegri yfirvegun. Það er búið að setja hans líf á hliðina, þeirra tveggja,“ sagði Sveinn Andri.