Hildur Guðnadóttir tónskáld vann Golden Globe verðlaun um helgina fyrir tónlistina sem hún samdi kvikmyndinni Joker. Í tilefni þess teiknaði myndlistamaðurinn Hugleikur Dagsson dásamlega mynd af Hildi.
Á teikningunni má sjá Hildi með Golden Globe verðlaunagripinn. Fyrir ofan stendur „I thought they forgot the music.“ Þar vísar Hugleikur í þakkarræðu Hildar þar sem hús sagði hlæjandi: „Ég hélt að þau hefðu gleymt tónlistinni,“ áður en hún þakkaði fólkinu sínu.
Vinur Hildar leggur til að hún láti húðflúra teikninguna á sig í athugasemd við myndina sem vakið hefur mikla lukku.
Hildur er himinlifandi með myndina og skrifar: „Hahahahahahahahaha takk fyrir mig!!!!!!“