Það er alls ekkert nýtt að verslanir hækki verðin hjá sér áður en auglýstar eru útsölur og tilboð. Neytendur eru og hafa verið blekktir með þessum hætti allt of lengi.
Neytandi nokkur tók skjámynd af grilli hjá Húsasmiðjunni áður en það fór á 20 prósent afslátt. Grillið kostaði fyrir tilboð 25.990 krónur, nú kostar það fullu verði 29.990 krónur og með afslættinum 23.990 krónur. Það gerir 8,3 prósent afslátt á upprunalegu verði grilllsins.
Sami aðili tók skjáskot af fleiri grillum en þessu tiltekna sem sýnir glögglega að önnur grill sem eru á síðu Húsasmiðjunnar núna hafa ekki hækkað í verði svo ástæðan liggur ekki þar.
Mannlíf hvetur neytendur til þess að vera vakandi og velkomið er að senda ábendingar er varða einkennilega verðlagningu á [email protected]