Englendingar bíða í ofvæni eftir að úrslitaleikur EM í knattspyrnu hefjist, en þá mætast Ítalía og England á Wembley í London og hefst leikurinn klukkan sjö í kvöld að íslenskum tíma.
Þótt enska úrvalsdeildin hafi verið um langt árabil sterkasta deild í heimi þá hefur enska karlalandsliðið ekki hampað nema einum stórum titli; urðu heimsmeistarar fyrir fimmtíu og fimm árum síðan, árið 1966, einmitt á Wembley, þegar þeir ensku lögðu Vestur-Þjóðverja að velli í framlengdum leik.
Allt hefur verið á öðrum endanum í Englandi vegna velgengni enska landsliðsins og hefur þjóðhátíðarstemning ríkt frá því að EM hófst. Sigri þeir ensku þá ítölsku í kvöld og hampa Evrópumeistaratitlinum í fyrsta sinn er nokkuð ljóst að stemningin mun halda áfram í allt sumar; jafnvel lengur.
Youtube-stjarnan enska, Emily Black, er án nokkurs vafa einn harðasti stuðningsmaður enska landsliðsins, en hún hefur þó mestar mætur á þjálfara liðsins, Gareth Southgate.
Emily birtir tvær myndir af sér fáklæddri og hvetur aðrar enskar konur að strippa fyrir Southgate og strákana hans ef „fótboltinn kemur heim í kvöld.“
Óhætt er að segja að færsla Emily á Twitter hafi vakið mikla athygli og margar konur segja í athugasemdarkerfi hennar að þær ætli sér að geri slíkt hið sama.