Íbúar í Laugarneshverfinu í Reykjavík kvarta undan vondri lykt í hverfinu. Umræður um fnykinn fara fram í Facebook hópi hverfisins. Auður Berglind Stefnisdóttir var fyrst til að vekja máls á þessu og veltir fyrir sér hvaðan stækjan kemur og hvar sé hægt að leggja fram kvörtun.
Fnykinn virðist leggjast yfir allt hverfið og minnir helst á lykt úr loðnubræðslu. En engin slík starfsemi er í návígi við nágrennið. Auður hefur fengið mikil viðbrögð við fyrirspurn sinni en margir hafa bent henni á að hafa samband við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar.
Ástríður Jónsdóttir fullyrðir að borgin sé meðvituð um málið og segir ,,Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur veit um málið. Alltaf ólykt í byrjun hverrar viku.“
Enn fleiri meðlimir hópsins taka undir þessa umræðu og segjast einfaldlega vera að kafna úr fýlu.
,,Hún var eitthvað extra stæk í morgun,“
,,Þetta er bara viðbjóður!“
Þolmörk Söndru Karenar eru á þrotum gagnvart lyktinni. ,,Sammála hvað lyktin er orðin óþolandi og ógeðsleg,“ segir hún.