Miðvikudagur 29. janúar, 2025
-7.2 C
Reykjavik

Inga Sæland glímir við víðtækt vantraust – „Það dugar ekki að láta, eins og þetta sé smotterí“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, glímir við víðtækt vantraust i kjölfar þess að hafa ólöglega þegið styrki fyrir flokk sinn að upphæð 240 milljónir króna. Inga harðneitar að endurgreiða styrkina og svarar ásökunum með árásum á fjölmiðla sem hún telur flytja falsfréttir.

Til viðbótar styrkjamálinu er Inga sökuð um að hafa í hótunum við skólameistara Borgarholtsskóla og vísa til áhrifa sinna hjá lögreglu og víðar. Hún hringdi sem amma í skólameistarann og skammaðist vegna þess að barnabarn hennar týndi fokdýrum skóm í skólanum. Málið þykir lýsa miklum dómgreindarbresti formannsins og að hún hafi ofmetnast við að komast í ríkisstjórn. Ríkisstjórnin er í vanda vegna framgöngu formannsins.

Fáir treysta sér til að koma Ingu til varnar opinberlega. Eiríkur Bergmann prófessor hefur sagt að Flokkur fólksins eigi varla annan kost en að endurgreiða styrkina. Inga hefur sagt að þá fari flokkur hennar í þrot sem Eiríkur segir að myndi ógna ríkisstjórnarsamstarfinu.

Jón Viðar Jónsson, álitsgjafi og leikhúsfræðingur, segist á Facebook vera sammála Eiríki Bergmann um að Flokkur fólksins verði að endurgreiða það fé sem hann hefur fengið úr rikissjóði í blóra við gildandi reglur.

„Það dugar ekki að láta, eins og þetta sé smotterí sem þau lagi á næsta landsfundi og svo gleymi menn þessu bara. Ef Flokkur fólksins ætlar að byrja setu sína í stjórn landsins þannig, á hann ekki heima þar,“ skrifar Jón Viðar og mælir fyrir munn margra.

Til viðbótar þessum tveimur hneykslisámálum standa öll spjót á Flokki fólksins fyrir að svíkja kosningaloforð og kokgleypa. Þannig getur flokkurinn ekki staðið við við það að tryggja öllum lágmarkslaun upp á 450 þúsund krónur eftir skatta og skerðingar. Þá hefur flokkurinn kúvent í afstöðu sinni til sölu Íslandsbanka og til Borgarlínu sem hann hafði áður verið algjörlega verið andvígur.

- Auglýsing -

Samstarfsflokkar Flokks fólksins í ríkisstjórn þegja þunnu hljóði um stöðu Ingu og axarsköft. Takist Ingu Sæland ekki að stilla til friðs í kringum sig má reikna með að vantraustið til hennar nái inn í þingsal með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -