Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tvennar tilkynningar um innbrot í Árbæ í gærkvöldi.
Rúmlega 19 var tilkynnt um innbrot og þjófnað þar sem skartgripum var stolið. Húsráðandi hafði verið að heiman í þrjá klukkutíma og þjófarnir athafnað sig á þeim tíma.
Um klukkutíma seinna kom önnur tilkynning um innbrot / þjófnað í sama hverfi. Þar hafði húsráðandi verið að heiman allan daginn og því ekki vitað hvenær farið var inn. Ekki er skráð hverju var stolið.
Rúmlega sex í gærkvöldi fékk lögreglan tilkynningu um að húsráðandi hefði komið að ókunnugu pari í bílskúr sínum þar sem þau voru búin að taka verkfæri og fleira. Húsráðandi sagði parinu að skila mununum og fóru þau án þess að taka neitt með sér en ógnuðu húsráðanda með eggvopni er þau fóru. Parið fannst ekki þrátt fyrir leit.