- Auglýsing -
Ellefu innanlandssmit greindust á landinu í gær. Alls eru fimmtíu fimmtíu virk smit á landinu. Kemur þetta fram í tölum sem birtust í dag á covid.is. Tíu smit greindust hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítala og eitt hjá Íslenskri erfðagreiningu.
287 eru í sóttkví, og einn á sjúkrahúsi, en hann var fluttur á COVID-göngudeild Landspítala í gær.