- Auglýsing -
15 ára drengur stakk jafnaldra sinn í Grafarvogi í nótt. Pilturinn er ekki í lífshættu að sögn Margeirs Sveinssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Mbl.is greinir frá þessu en lögreglan greindi ekki frá árásinni í dagbók lögreglu, líkt og venja er. Drengurinn er í haldi lögreglu en Margeir fullyrðir að málið tengist ekki hnífaárásinni fyrir viku eða hótunum vegna hennar.