Blaðamaður Mannlífs kannaði verð á pylsu og gosi í nokkrum vegasjoppum og af þeim var Olís í Borgarnesi ódýrust. Allir brugðust staðirnir afar vel við fyrirspurnum Mannlífs, að undan skilinni Orkunni við Vesturlandsveg, en viðmælandi þar á bæ brást heldur illa við fyrirspurn blaðamanns og sagðist ekki gefa upp verð í síma.
Ef fjölskyldan kaupir pylsu og 500 ml. dós af Pepsi Max fyrir hvern meðlim, kostar það 3.340 krónur hjá Olís, en 4.200 krónur ef fjölskyldan borðar á N1. Það er því 25,6 prósent dýrara að fá sér pylsu og gos hjá N1. Með því að versla við Olís sparast því 860 krónur fyrir fjölskylduna. Ef fjölskyldan hins vegar ákveður að bíða með að borða þar til hún kemur í Búðardal og fara þar í Krambúðina, er verðmiðinn 3.720 krónur, sem er 11 prósent dýrara en hjá Olís í Borgarnesi.
Verð í fleiri vegasjoppum og heildar verðsamanburð má finna í nýjasta tímariti Mannlífs.