- Auglýsing -
Alls greindust 488 manns með COVID-19 í gær, þar af fjörutíu á landamærunum. Þetta er mesti fjöldi sem greinst hefur innanlands eða 448 manns.
152 voru í sóttkví eða um 31% smitaðra. Hér er visað til bráðabirgðatalna frá Almannavörnum en covid.is verður næst uppfærð á mánudag, 27.desember. Yfir hátíðirnar eru tölurnar því aðeins bráðabirgða.
Nú eru 2.969 manns í einangrun hér á landi og 3.812 í sóttkví.