Í sumar hefur Laugarvatn Fontana veitt góðan afslátt af aðgöngumiðum í heilsulindina. Fullorðnir fá 50% afslátt og aðgangseyririnn er því 2000 krónur og unglingar (13-16 ára) fá 25% afslátt og greiða 1500 krónur. Ókeypis er fyrir 12 ára og yngri.
Fyrir þá sem ekki þekkja til Fontana þá er um að ræða heitar laugar, gufubað og sauna, auk þess sem hægt er að ganga frá laugunum út í sjálft Laugarvatn. Heitar uppsprettur eru við ströndina og vatnið því ekki ískalt næst ströndinni og ylur er víða í sandinum.
Senn líður að sumarlokum en afsláttinn má enn nýta nokkra daga til viðbótar og er hægt að bóka á netinu.