Samkvæmt upplýsingum Þjóðskrár eru 73 einstaklingar með skráð lögheimili í húsinu á horni Bræðraborgarstígs og Vesturgötu sem brann í dag. Húsið er skráð rúmir 450 fermetrar.
Fólkið sem er skráð með lögheimili í húsinu er á öllum aldri en flestir eru af erlendum uppruna.
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar staðfesti fyrr í kvöld í samtali við Fréttablaðið að einhverjir þeirra sem búa í húsinu séu félagsmenn Eflingar. Hún sagði að Efling hafi haft verulegar áhyggjur af ástandinu sem íbúar hússins búa við.
Þá hefur Stundin fjallað um húsið og ástand þess. Í þeirri umfjöllun var haft eftir fyrrverandi leigjanda að húsið sé í niðurníðslu en að þar hafi fjöldi fólks búið hverju sinni og leigi það stök herbergi. Viðmælandi Stundarinnar sagði húsið afar illa farið, hann sagði m.a. glugga illa farna og allt morandi í myglusvepp.