Elsta leiklistarhátíð landsins, Act alone, verður haldin dagana 6. til 8. ágúst á Suðureyri við Súgandafjörð. Þetta er sautjánda árið í röð sem hátíðin er haldin. Elfar Logi Hannesson er aðalhvatamaðurinn að hátíðinni og hann hvetur fólk til að muna fjarlægðarmörk vegna kórónuveirufaraldursins. „Stöndum saman á Actinu, samt ekki of þétt og berum virðingu fyrir hvert öðru,“ er haft eftir honum á vefsíðunni bb.is. Eins og áður er ókeypis á alla viðburði hátíðarinnar.
Viðburðirnir á Actinu í ár eru átján talsins. Að vanda er fjölbreytileikinn í aðalhlutverki; einleikir, óperur, dans, tónlist og fleiri uppákomur. Meðal viðburða á hátíðinni í ár eru uppistand með Pétri Jóhanni, tónleikar með Beetween Mountains, ljóðadagskrá með Arnari Jónssyni, danssýning Katrínar Gunnarsdóttur og tónleikar með Auði, en þetta verður í fyrsta sinn sem hann heldur tónleika á Vestfjörðum. Að vanda er boðið upp á vandaða dagskrá fyrir æskuna; töfranámskeið með Einari Mikael, sögustund með Sirrý um tröllastrákinn Vaka og tónleika með Aðalsteini Ásberg.
Dagskrá Act alone er að finna á heimasíðu hátíðarinnar.