Undanfarið hefur töluvert borið á ábendingum og kvörtunum árvakra neytenda vegna minnkandi skammtastærða veitingastaða og matvælaframleiðenda. Í þessum tilfellum hafa skammtar minnkað en verð annaðhvort staðið í stað eða hækkað.
Þannig er vakin athygli á frönskum frá Aktu taktu, en þar er um að ræða miðstærð af frönskuskammti, sem vegur einungis 112 grömm ef marka má færslu Agnars nokkurs í Facebookhópnum Brask og brall.is. Verðið fyrir herlegheitin segir hann hafa verið 999 krónur.
„Okur nær hæstu hæðum, ekki aftur takk og bless Jói,“ segir Agnar.
„Löngu hættur að versla í þessari skítabúllu. Merkilegt að fólk versli þarna yfir höfuð ennþá,“ segir Stefán nokkur.
Einhverjir vilja meina að þarna sé fyrirtækinu Foodco um að kenna.
„Foodco á Aktu taktu og það segir allt,“ segir Rúnar.
Það skal þó tekið fram að það er fyrirtækið Gleðipinnar sem á Aktu taktu. Gleðipinnar og Foodco fóru þó í eina sæng árið 2019 og fengu samrunann formlega samþykktan af Samkeppniseftirlitinu árið 2020. Það er Jóhannes Ásbjörnsson sem er einn eigenda Gleðipinna, en hann er þá líklega sá „Jói“ sem Agnar kveður í upphaflega innlegginu.