Ákveðið verður á mánudaginn hvort Sigurður Fannar Þórsson verður ákærður fyrir að hafa banað tíu ára dóttur sinni þann 15. september en Sigurður hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan. Ákvörðun þessi er í höndum héraðssaksóknara en Vísir greindi frá málinu. Sigurður var handtekinn af lögreglu eftir að hann hringdi og tilkynnti að hann hafi banað dóttur sinni en hann var handtekinn við Krýsarvíkurveg og fannst lík dóttur hans skammt frá. Í íslenskum lögum má einstaklingur í mesta lagi vera 12 vikur í gæsluvarðhaldi án þess að ákæra sé gefin út. Þó er hægt að gera undantekningu á því ef brýnir rannsóknarhagsmunir krefjist þess. Málið hefur vakið mikinn óhug hjá landsmönnum en nánast um leið og fjölmiðlar greindu frá málinu fóru á stað sögur um að erlend glæpasamtök hafi átt sök á andláti dóttur Sigurðar en samkvæmt lögreglu er ekkert sem bendir til þess að slíkt eigi sér stoð í raunveruleikanum. Gengu sögurnar svo langt að Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, bað fólk að koma með allar upplýsingar til lögreglu í stað þess að ræða þær á internetinu.