- Auglýsing -
Alda Karen Hjaltalín, vakti mikla athygli árið 2019 sem fyrirlesari, og þá aðallega fyrir það að segja fólki að kyssa peninga. Þá vakti hún einnig athygli þegar hún kom með viskumolann „Þú ert nóg“ þegar hún hélt námskeiðið Life-Masterclass fyrir fullum Eldborgarsal í Hörpu.
Alda Karen tilkynnir á Facebook nú síðdegis að hún hafi sagt já þegar unnusta hennar fór á skeljarnar. „Auðveldasta já-ið á ævi minni,“ segir Alda Karen. Unnusta hennar heitir Katherine Lopez og má sjá mynd af parinu hér fyrir neðan.