Miðvikudagur 15. janúar, 2025
7.8 C
Reykjavik

Álftin ekki skotin til bana – Ökumaður gaf sig fram við lögreglu

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Álftin sem drapst við Upphéraðsvegi í Fellum við bæinn Kross innan við Fellabæ í gærmorgun, reyndist ekki hafa verið skotin eins og sagt var frá í fréttum í gær. Leit út eins og skotgat væri á höfði hennar.

Samkvæmt lögreglunni á austurlandi, gaf sig fram ökumaður við lögregluna og kvaðst hafa ekið á álft á þessum slóðum í gærmorgun. Láðist honum hinsvegar að tilkynna atvikið á þeim tíma.

Vegna rannsóknar málsins og gruns um skotáverka var í gær dýralæknir fenginn í að meta dánarorsök álftarinnar en fuglinn er friðaður hér á landi. Komst dýralæknirinn að þeirri niðurstöðu að áverkar sem finna mátti á fuglinum voru þess eðlis að keyrt hafi verið á hana.

Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að lögreglan vilji vegna þessa atviks árétta við ökumenn að þeir gæti að hraða ökutækja sinna og hugi þannig meðal annars að öryggi dýra við veg. Vísar hún þar meðal annars til fréttar er hún sendi á vef lögreglu þann 9. maí síðastliðinn um ástæður þess að dýr safnast gjarnan við vegi landsins á þessum árstíma. Þörf lesning og brýn með vísan til þess sem í gær gerðist. (Sjá hér: Ökum varlega – gætum að dýrum á og við veg | Lögreglan (logreglan.is) )

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -