Mánudagur 13. janúar, 2025
6.8 C
Reykjavik

Alma ræður lækni og lögfræðing í vinnu: „Samanlagðir kraftar þeirra munu tvímælalaust nýtast vel“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur ráðið sem aðstoðarmenn sína Jón Magnús Kristjánsson lækni og Guðríði Láru Þrastardóttur lögfræðing samkvæmt tilkynningu frá stjórnarráðinu.

Guðríður Lára hefur verið aðstoðarmaður þingsflokks Samfylkingarinnar frá árinu 2022. Hún er með BA- og ML gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Guðríður starfaði sem héraðsdómslögmaður hjá OPUS lögmönnum og VALVA lögmönnum árin 2008-2014. Árin 2015 til 2022 starfaði hún sem lögfræðingur í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd og teymisstjóri hjá Rauða krossinum á Íslandi.

Jón Magnús er sérfræðingur í bráðalækningum og fyrrum yfirlæknir bráðamóttöku Landspítala. Hann er auk þess með MBA gráðu frá háskólanum í Reykjavík og diploma gráðu í opinberri stjórnsýslu frá háskóla Íslands. Jón Magnús hefur viðtæka starfsreynslu í heilbrigðiskerfinu um allt land og hefur áður starfað í heilbrigðisráðuneytinu þar sem hann var árið 2022 ráðinn til að leiða tímabundið viðbragðsteymi til að efla bráðaþjónustu á landsvísu. Jón Magnús hefur birt fjölda greina í ritrýndum fagtímaritum og komið að og stýrt mörgum þróunar- og gæðaverkefnum á Landspitalanum.

„Ég tel mikinn feng í því að hafa fengið Jón Magnús og Guðríði Láru mér til aðstoðar. Þau hafa bakgrunn, menntun og reynslu á ólíkum sviðum. Samanlagðir kraftar þeirra munu tvímælalaust nýtast vel í þeim fjölbreyttu verkefnum sem framundan eru í heilbrigðisráðuneytinu og ég hlakka til að vinna með þeim,“ sagði Alma D. Möller heilbrigðisráðherra um ráðningu Jóns og Guðríðar.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -