Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skipa Guðmann Ólafsson skrifstofustjóra á skrifstofu fjármála í heilbrigðisráðuneytinu en greint frá þessu í tilkynningu frá stjórnarráðinu.
„Guðmann er með MSc gráðu í alþjóðaviðskiptum frá Copenhagen Buisness School og BS gráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands. Hann hóf störf sem sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu árið 2018 og hefur frá árinu 2024 verið staðgengill skrifstofustjóra á skrifstofu fjármála. Áður starfaði hann í rúm fimm ár hjá Seðlabanka Íslands og fyrir þann tíma um sex ára skeið hjá Arion verðbréfavörslu,“ stendur í tilkynningunni.
„Í störfum sínum í heilbrigðisráðuneytinu hefur Guðmann tekið virkan þátt í gerð fjármálaáætlunar og fjárlaga og komið að eftirliti með rekstri ráðuneytisins og fjármálum undirstofnana þess. Hann hefur leitt stefnumótun, gerð og innleiðingu nýrra reiknilíkana á sviði sjúkrahússþjónustu og átt sæti í verkefnisstjórn um kynjaða hagstjórn. Auk þessa hefur hann tekið þátt í alþjóðlegu samstarfi vegna þjónustutengdrar fjármögnunar heilbrigðisstofnana og tekið virkan þátt í að miðla þeirri þekkingu til hagaðila innan íslenska heilbrigðiskerfisins.“