- Auglýsing -
Árásarmaðurinn sem skaut mann til bana á Blönduósi í morgun var fyrr í sumar handtekinn af lögreglunni á Blönduósi. Vísir greinir frá þessu.
Þá hafði maðurinn í hótunum með skotvopn og var í kjölfarið handtekinn. Honum var svo sleppt.
Maðurinn skaut annan mann til bana í heimahúsi við Hlíðarbraut á Blönduósi og lést svo sjálfur af völdum skotsárum.
Enn liggur ekki fyrir hver tengsl hans voru við fórnarlamb árásarinnar sem átti sér stað á sjötta tímanum í morgun.