Lögregla handtók karlmann á veitingastað í gærkvöldi. Sá var í annarlegu ástandi og hafði bæði áreitt gesti, stolið af þeim og neitað að yfirgefa staðinn. Maðurinn var látinn gista í fangageymslu lögreglu.
Íbúa í Árbænum brá heldur betur í brún þegar hann kom heim í gærkvöldi. Brotist hafði verið inn í íbúð viðkomandi, róta í öllum hirslum og stela tölvu auk annarra verðmæta. Lögregla rannsakar málið. Í Breiðholti hafði lögregla afskipti af manni vegna vörslu fíkniefna. Ætluð fíkniefni voru handlögð og vettvangsskýrsla rituð. Þá sinnti lögregla umferðareftirliti og stöðvaði nokkra ökumenn sem grunaðir voru um akstur undir áhrifum vímuefna.