Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri viðurkennir að tíðar tásumyndir Íslendinga frá Tenerife hafi verið vísbending um vaxandi einkaneyslu landans. Enn ein hækkun stýrvaxta bankans, um 0,25 prósentur og þá upp í 5,75 prósent, séu viðbrögð við hinni kröftugu einkaneyslu Íslendinga á fyrri hluta ársins.
Á fundi Seðlabankans í morgun sagði Ásgeir að hin mikla einkaneysla hafi ekki komið honum á óvart.
„Það er ekkert óeðlilegt í ljósi þess að fólk var búið að sitja heima hjá sér að spara pening í tvö ár eða eitthvað álíka að þeim pening geti verið eytt, á fyrri hluta ársins. Að það skuli hafa komið svona kröftug viðbrögð í einkaneyslu eins og við sjáum núna í sumar,“ sagði Ásgeir.