- Auglýsing -
Bílaumboðið Askja ehf. innkallar nú 20 Mercedes-Benz X-Class bifreiðar framleiddar árin 2018-2020. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að Active Brake Assist kerfið virki ekki sem skyldi.
Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina símleiðis.
Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.
Ert þú með ábendingu um neytendamál? Sendu póst á [email protected].