Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, greinir frá því á Facebook að í morgun hafi hann lagst inn á Landspítalann en hann er á leið í liðskipti á hné. Hann segir aðhlynninguna sem hann fékk í morgun þá sömu og þegar hann fór í sína fyrstu speglun fyrir 35 árum, þrátt fyrir „aukið álag, veirufaraldur og annað sem þjakar heilbrigðiskerfið“.
Pistill Ásmundar í heild sinni
Á ferð í heilbrigðiskerfinu.
Mikið var tekið vel á móti mér kl 7 á mánudagsmorgun á Landspítala- Borgarspítala. Ég er að fara í mín fjórðu og vonandi síðustu liðskipti á hné. Eftir tug speglana og aðgerða til að laga á mér hnén fékk ég hálfan lið í vinstra hné árið 1999 og í það hægra 2004.
Því var spáð að hálfur líður mundi duga í 12 ár. Þeir dugðu í 20 ár hvor þrátt fyrir yfirþyngd og miklar göngur til að halda mér í formi.
Ég var í áratugi FF eða feitur í formi. Nú er ég bara í formi enda 32 kg léttari en við síðustu liðskipti 2021.
Ég er þakklátur heilbrigðisstarfsfólki fyrir lipurð og frábæra þjónustu í gegnum 15 minni og stærri speglanir og aðgerðir á hnjánum mínum síðan 1978.
Viðmótið sem ég ég fékk í morgun er það sama og í fyrstu speglunum fyrir 35 árum. Starfsfólkið og aðhlynning þess við sjúklingana hefur ekkert breyst. Þrátt fyrir aukið álag, veirufaraldur og annað sem þjakar heilbrigðiskerfið. Sumt óviðráðanlegt annað á ábyrgð yfirvalda.
Ég á heilbrigðiskerfinu mikið að þakka og mun áfram bera ábyrgð sem best ég get á eigin heilsu.