Ástþór Magnússon, sexfaldur frambjóðandi til forseta Íslands, vill ekki upplýsa strax hvort hann muni fjármagna væntanleg forsetaframboð Ásdísar Ránar Gunnarsdóttur en hún lýsti því yfir kosningavöku sinni fyrr á þessu ári.
„Ég er offisjalí búin að taka að mér friðarmálin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði forsetaframbjóðandinn og fyrirsætan einnig. „Ég veit að þið öll vitið að ég er langflottasti forsetinn í þessum hóp.“
Hörmulega afleiðingar
Ástþór sagði í samtali við Mannlíf að hann muni upplýsa þjóðina um mögulega fjármögnun á framboði Ásdísar í þriðju útgáfu á bókinni „Virkjum Bessastaði“ sem kemur út fyrir næstu jól en samkvæmt Ástþóri mun hann rekja samskipti sín við Höllu Tómasdóttur og Guðna Th. Jóhannesson og segja frá framtíðaráformum Friðar 2000 í nýjustu útgáfu bókarinnar.
„Nú þegar Halla hefur náð kjöri árið 2024 mun Friður 2000 fylgjast grant með aðgerðum forsetans á næstu mánuðum og árum og er ætlast til þess að Halla grípi til róttækra aðgerða til að koma Íslandi á kortið sem landi friðarins. Takist það ekki gæti Ísland dregist enn frekar inní alþjóðleg stríðsátök og vopnaskap með hörmulegum afleiðingum fyrir þjóðina.“