Sunnudagur 8. september, 2024
8.5 C
Reykjavik

Atli: „Þolendur kynferðisofbeldis – þurfa sömu vernd og uppljóstrarar“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Atli Þór Fanndal framkvæmdastjóri samtakanna Transparency International segir kerfisbundið vantraust á meðferð kynferðisbrota í réttarkerfinu og að óraunhæfar kröfur séu reglulega settar á þolendur í slíkum málum.

„Samlíkingar við dómstóla götunnar og yfirlætisfullir frasar um sakleysi uns sekt sé sönnuð,“ séu einfaldlega ekki þau viðbrögð sem nú þarf.

„Raunin er sú að fæst þessi mál ná til dómstóla, það er erfitt að kæra og það er oft skilningsleysi á því hvers eðlis þessi brot eru. Þegar fólk upplifir það, þá leitar það næstu leiða. Ef við viljum að þessi mál fari fyrir dómstóla en séu ekki leyst á samfélagsmiðlum, þá þurfum við auðvitað að sjá til þess að kerfið sé sanngjarnt,“ segir Atli Þór

Atli segir að stjórn Íslandsdeildar samtakanna óski eftir sams konar vernd fyrir þolendur kynferðisofbeldis og við á um uppljóstrara, eftir að fimm þjóðþekktir menn stigu til hliðar í vikunni í tengslum við ásakanir um kynferðisbrot.

Mannlífs hefur fjallað um mál Vítalíu Lazarevu, þar sem hún kom fram í hlaðvarpsþætti Eigin Konur sem Edda Falak stjórnar.

Atli Þór, segir í samtali við Vísi að samfélagsleg staða gerenda í kynferðisbrotamálum, eins og samfélagstengingar og áhrifanet, hafi áhrif á líðan brotaþola og getu til að leita réttar síns.

- Auglýsing -

„Það er mjög þekkt í spillingarfræðum og baráttu gegn spillingu að vald og ásýnd valds hefur auðvitað mjög mikil áhrif. Í þessum málum, og kannski sérstaklega þessu máli, þá segir Vítalía í viðtalinu og talar um hvernig völd og tengsl og netið í kringum þessa menn hefur haft áhrif á hennar baráttu,“ segir Atli.

Brotaþolar þurfa þessa vernd

Einn þeirra manna sem hafa verið til umræðu í tengslum við málið er Logi Bergmann fjölmiðlamaður. Logi birti færslu á Facebook í kjölfar ásakananna og sagðist saklaus, en sjá eftir að hafa farið yfir mörk í einkalífi fólks. Fjölmargir „líkuðu við færsluna,“ meðal annars Áslaug Arna vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

„Það er rosalega auðvelta að segja: Læk getur þýtt hitt og þetta en það vita það allir sem starfa í fjölmiðlum eða í stjórnmálum að svona yfirlýsingar á netinu um svona mál, og þá sérstaklega þegar fólk er að berjast fyrir sinni hlið, eru liðsöfnun,“ segir Atli og bætir við að það sé ekki eðlilegt að fólk í áhrifastöðum læki við sams konar færslur eins og þar var gert.

- Auglýsing -

Atli Þór segir að þrátt fyrir að brotin séu eðlisólík séu árásirnar sem uppljóstrar verði fyrir að mörgu leyti keimlíkar þeim sem þolendur kynferðisofbeldis verða fyrir:

„Uppljóstrarar þurfa sérstaka vernd gagnvart þessum árásum og tilraunum til að grafa undan þeim og annað slíkt þá leiðir það einfaldlega af sér að brotaþolar í þessum málaflokki þurfa þessa vernd.“

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -