- Auglýsing -
Slysið sem varð á Suðurlandsvegi á sjöunda tímanum í gærkvöldi var banaslys. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi en var um að ræða dráttarvél og jeppa sem skullu saman.
Tveir voru fluttir slasaðir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann í Fossvogi. Einn var úrskurðaður látinn á vettvangi. Mun þetta vera sjötta banaslysið í umferðinni á árinu. Níu létust í umferðinni allt seinasta ár.