Í tilkynningu frá lögreglunni á Vesturlandi er greint frá því að umferðarslysið sem gerðist í gær hafi verið banaslys.
Banaslysið átti sér stað á Vesturlandsvegi stutt frá Hvalfjarðarvegi og lenti fólksbíll á vörubíl. Ökumaður fólksbílsins lést við áreksturinn.
Hægt er að lesa alla tilkynningu lögreglu hér fyrir neðan.
„Alvarlegt umferðarslys á Vesturlandsvegi var tilkynnt 112 neyðarlínu þann 16. janúar klukkan 09:48. Slysið átti sér stað á Vesturlandsvegi skammt frá gatnamótunum við Hvalfjarðarveg. Þar hafði fólksbifreið á suðurleið rekist utan í vöruflutningabifreið sem kom úr gagnstæðri átt og síðan á aðra vöruflutningabifreið sem kom þar á eftir. Ökumaður fólksbifreiðarinnar lést við áreskturinn og farþegi hans slasaðist en ökumenn vöruflutningabifreiðanna voru óslasaðir en voru fluttir til skoðunnar á sjúkrahúsið á Akranesi þar sem þeir síðan fengu áfallahjálp. Lögreglan á Vesturlandi áasamt sjúkra- og slökkviliði fóru á vettvang og þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út sem flutti slasaðan farþega til Reykjavíkur. Tæknideild lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu ásamt rannsóknarnefnd samgönguslysa komu á vettvang en rannsóknardeild lögreglunnar á Vesturlandi rannsakar slysið.“