- Auglýsing -
Samkvæmt tilkynningu frá Lögreglunni á Austurlandi segir að lögreglu hafi borist tilkynning á fjórða tímanum í nótt vegna slyss við smábátahöfnina á Vopnafirði. DV greindi fyrst frá tilkynningu lögreglu en þar kemur fram að kona á þrítugsaldri hafi fallið fram af klettum og í fjöruborðið. Þegar lögregla kom á vettvang var hún úrskurðuð látin. Lögregla rannsakar nú málið en engar frekari upplýsingar hafa fengist að svo stöddu.