- Auglýsing -
Banaslys varð á föstudaginn á sveitabýli í Ásahreppi.
Fram kemur í frétt á sunnlenska.is að maður hafi klemmst á sveitabýli í Ásahreppi síðastliðinn föstudag, þar sem verið var að vinna við dráttarvél og lést hann af sárum sínum.
Ekki er unnt að greina frekar frá tildrögum slyssins að svo stöddu. Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi fer með rannsókn málsins.