Lögreglu barst tilkynning um umferðaróhapp í gærkvöldi í hverfi 108. Þar höfðu tvær bifreiðar rekist saman með þeim afleiðingum að önnur þeirra valt. Sjúkrabílar fluttu bæði ökumenn og farþega á bráðamóttöku til aðhlynningar. Dráttarbíll flutti bifreiðarnar af vettvangi en ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvort fólkið hafi slasast.
Fyrr um kvöldið í sama hverfi hafði lögregla afskipti af tveimur einstaklingum. Báðir eru þeir grunaðir um vörslu fíkniefna. Í Kópavogi var ekið á reiðhjólamann. Ekki er vitað um meiðsli eða tjón. Þá var brotist inn í geymslu í Kópavogi. Ekki kemur fram í dagbók lögreglu hverju þjófurinn stal. Nokkrir ökumenn voru stöðvaðir í nótt vegan gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Einn þeirra var handtekinn og sviptur ökuréttindum fyrr ítrekuð sambærileg brot.