Birgir Jónsson, forstjóri Play, segir óumflýjanlegt að hækkun á olíuverði í heiminum í dag muni valda hækkun á verði flugmiða. Þetta segir hann í viðtali við RÚV. Hann segir standa til að lágmarka rekstrarkostnað flugfélagsins til þess að mæta auknum kostnaði.
„Það er alveg ljóst að ef heimsmarkaðsverð á eldsneyti hækkar um tugi prósenta mun það skila sér í hærra verðlagi,“ segir Birgir. „Þannig að við erum bara að reka fyrirtæki á ábyrgan hátt og seljum ekki vöruna okkar undir kostnaðarverði frekar en nein önnur fyrirtæki sem ætla sér að lifa af.“ Hann segist telja að allir gætu átt von á því að flugmiðar, sem og önnur þjónusta, muni hækka á næstu misserum. „Það er óumflýjanlegt.“
Birgir segir að rekstrarkostnaður flugfélagsins verði lágmarkaður á öllum sviðum. „Við ætlum bara í raun og veru að vera enn þá harðari í að skerða kostnað og halda um budduna,“ segir hann. Það þurfi lágan kostnað svo hægt sé að bjóða neytendum lág verð.