Sífellt háværari umræða er um að tíðni byrlunar hafi aukist á skemmtistöðum í miðbæ Reykjavíkur síðustu misseri.
Morgunblaðið talar í dag við Birgittu Líf Björnsdóttur, eiganda skemmtistaðarins Bankastræti Club, en hún vill meina að þessum atvikum hafi fjölgað töluvert síðustu helgar. Hún líkir ástandinu hreinlega við faraldur.
„Ég veit um nokkur tilvik, bæði hjá okkur og öðrum stöðum niðri í bæ núna síðastliðnar helgar þar sem þetta virðist vera að koma upp og virðist einhvern veginn vera að færast í aukana, það er eins og það sé einhver faraldur í gangi,“ segir Birgitta í samtali við Morgunblaðið.
Birgitta segir að starfsfólk á Bankastræti Club sé mjög vakandi fyrir málinu og þekki vel einkenni byrlunar. Í þeim tilvikum sem þetta hafi komið upp á staðnum hafi ávallt verið hringt á sjúkrabíl og starfsfólk fylgt manneskjunni sem varð fyrir byrluninni út.
Hún veltir því upp hvort næsta skref sé mögulega að leita á öllum sem koma inn á staðinn, sérstaklega í ljósi nýrrar aðferðar við byrlun, þar sem fólk er sprautað með lyfi.
Mikið er nú rætt um þessa nýju aðferð og aukna tíðni byrlunar af þessu tagi í Bretlandi. Meðal þeirra sem vakið hafa athygli á málinu er Jóna Þ. Pétursdóttir, lögfræðingur og ungmennafulltrúi Íslands á sviði mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum.
Einkenni byrlunar geta verið mismunandi eftir því hvaða lyf er um að ræða.
Þau geta meðal annars verið eftirfarandi:
Svimi
Ógleði
Skyndilegt og mikið ölvunarástand
Óskýrt tal
Máttleysi í útlimum
Skert samhæfing
Skynbrenglun, til dæmis skert sjón
Ringlun, viðkomandi er utan við sig og fjarlægur
Skert meðvitund
Uppköst
Minnisleysi
Hægur hjartsláttur