Íslandsbanki birtir spurningar og svör þar sem hluthöfum er svarað í tengslum við þá sátt sem Íslandsbanki gerði við Seðlabanka Íslands en þar kemur fram í 20. lið að Birna Einarsdóttir, sem lét af störfum sem bankastjóri í lok júní eftir að Íslandsbanki þurfti að greiða 1,2 milljarða í sekt vegna framkvæmdar við sölu á hlut ríkisins í bankanum, muni fá greiddar 56,6 milljónir króna eftir starfslokin.
Upphæðin er til komin vegna 12 mánaða uppsagnarfrests sem ráðningarsamningur hennar kvað á um auk orlofs og lífeyrisréttinda. Greiðslurnar fara fram í formi launagreiðsla yfir 12 mánaða tímabil.
Jafnframt kemur fram að starfslokasamningurinn sé í fullu samræmi við ráðningarsamning hennar og rúmist innan starfskjarastefnu bankans, sem samþykkt var á síðasta aðalfundi, og gildandi lög um fjármálafyrirtæki.