Birta Guðmundsdóttir er ein fjölmargra kvenna sem á ekki til orð yfir nýbirtu orðarugli í prentútgáfu Morgunblaðsins. Þar eru lesendur blaðsins meðal annars beðnir um að finna orðið „hópnauðgun“ úr ruglinu. Og Birta er nánast orðlaus í færslu á Twitter:
„Hvernig datt ykkur í hug að nota þetta orð í orðarugli??“
Og þetta nýja orðarugl Morgunblaðsins hefur nú þegar ratað inn í fjölmennt samfélag á Facebook sem berst gegn ofbeldismenningu hér á landi. „HA???“ og „OMG!!!“ eru meðal viðbragða frá meðlimum hópsins.
Helga er ein þeirra fjölmörgu sem ekki eiga orð yfir Davíð og félögum á Mogganum. „Ég er bara orðlaus yfir þessu orðavali,“ segir hún. Jenný er því algjörlega sammála. „Vilja þeir ekki bæta við Fjöldamorðingi, barnaníðingur, kynlífsþrælkun og öðrum fallegum orðum?, spyr Jenný. Og Aðalbjörg veltir fyrir sér hver átti hugmyndina að ruglinu. „Ég skil ekki hvernig einhverjum fannst þetta góð hugmynd,“ segir Aðalbjörg.