Reglulega kemur upp umræða um laun og kostnaðargreiðslur þingmanna og er hægt að sjá slíkt á heimasíðu Alþingis. Síðan sem slík er hins ekkert frábær svo hugbúnaðarverkfræðingurinn Hilmar Pálsson tók málin í eigin hendur. Hann bjó til eigin heimasíðu þar sem hægt að sjá hvaða alþingismenn fá mest í sinn vasa frá almenningi yfir allt árið. Flokkarnir eru sex talsins:
Samtals laun 2023 – Efstur þar á lista er Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, með rúmar 22 milljónir.
Eldsneyti 2023 – Efstur þar er Framsóknarmaðurinn Stefán Vagn Stefánsson en eyðsla hans í eldsneyti er tæpar 750 þúsund krónur.
Ferðir með bílaleigubíl 2023 – Stefán Vagn er einnig efstur hér en hann eyðir rúmlega 1,6 milljón í bílaleigubíla.
Flugferðir 2023 – utan lands – Þennan flokk sigrar Bjarni Jónsson, þingmaður Vinstri grænna, með 1,8 milljón
Flugferðir 2023 – innan lands – Annar þingmaður Vinstri grænna, hún Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, setur tæpa 1,5 milljón í flug innan lands.
Síma- og netkostnaður 2023 – Svo er það Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Pírati sem rétt sigrar Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur með 238 þúsund í síma- og netkostnað.
Hægt er að smella á þingmennina til að sjá sundurliðun á kostnaði hjá hverjum og einum.