Steinunn Árnadóttir heldur áfram að berjast fyrir kindunum í Borgarfirði sem hafa verið á vergangi um langt skeið.
Í gær birti Steinunn Árnadóttir, orgelleikari og baráttukona, nýja ljósmynd af útigangsfénu frá Höfða í Borgarfirði. Nú eru kindurnar komnar í Norðurárdal samkvæmt Steinunni.
„Nú eru komnir landnemar í Norðurárdal.
Vinurnar eru þá ekki lengur útigangsfé, þær eru kallaðar því hræðilega nafni ágangsfé. Sem sé öllum til ama og alls staðar óvelkomnar.“
Steinunn skýtur einnig á Matvælastofnun og Borgarbyggð í færslunni:
„Nú hefst keppnin milli MAST og Borgarbyggð -ar hver ber ábyrgð og hver ber alls ekki ábyrgð, meira þó það síðarnefnda.“
Því næst rifjar hún upp sögu baráttu sinnar fyrir kindunum:
Mynd sem fylgir er tekin í gær 10.april, já í Norðurárdal …“
Í gærkvöldi birti Steinunn svo myndskeið sem hún tók af kindunum frá Höfða en varar viðkvæma við: „Síðastliðna viku hef ég sent daglega póst til MAST án þess að fá nokkur viðbrögð eða svör. Í tilefni þess bjó ég til myndband af málleysingjunum, vinum mínum og er viðeigandi að Sound of silence hljómi í söguþræðinu „Hryllingurinn á höfða“
„Alls ekki fyrir viðkvæma“.“
Hér má sjá myndskeiðið: