Handknattleiksmaðurinn Bjarki Már Elísson breytir um stíl.
Landsliðsstjarnan Bjarki Már Elísson hefur um nokkurt skeið verið einn af besti handboltamönnum heimsins en þrátt fyrir það náði hann sér ekki á strik þegar íslenska handboltalandsliðið keppti á Evrópumótinu í Þýskalandi í janúar.
Bjarki þarf þó ekki að hafa miklar áhyggjur en stórmót í handbolta eru nánast á hverju ári og hefur því nægan tíma til að rífa sig í gang þar á bæ. Hann hefur þó ýmsu að fagna og eignaðist sitt annað barn í fyrra. Í nýrri mynd sem hornamaðurinn birti á samfélagsmiðlum sést að Bjarki hefur látið síða hárið fjúka en það hefur verið öfund margra hárskertra karlmanna undanfarin ár.
Myndina merkir hann einfaldlega sem Stelpupabbi“
View this post on Instagram