Egill Helgason ræddi við oddvita stjórnmálaflokka um úrslit kosninganna í Silfrinu í dag. Fram komu Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, Logi Einarsson, formaður Samfyllkingarinnar, Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins segir fólk horfa á Framsókn sem hinn sanna miðjuflokk
Hik í uppbyggingu í samgöngumálum og afturhvarf til bílisma í Reykjavík yrðu hryllileg tíðindi fyrir metnað Íslendinga í loftslagsmálum, að sögn Loga Einarssonar, formanns Samfylkingarinnar.
Ráðherra Sjálfstæðisflokks segir úrslitin í Reykjavík kröfu um breytingar.
Í mörgum stærstu sveitarfélögunum blasti tap Sjálfstæðisflokksins við, þeir töpuðu bæjarfulltrúum fyrir borð vinstri hægri eins og í Reykjavík.
Sjálfstæðisflokkurinn tapaði meira að segja í Garðabæ, höfuðvígi flokksins, en Bjarni Benediktsson formaður flokksins mætti ekki brotinn í Silfur Ríkisútvarpsins, nema síður sé.
Bjarni var hinn brattasti. Sagði jú vissulega að þar hefðu þau gjarnan viljað vera yfir 50 prósentunum eins og raun varð, en sjö bæjarfulltrúar af ellefu sé frábær árangur hvernig sem á það er litið og í hvaða samhengi sem er.
HÉR er hægt að sjá þáttinn inn á vef RÚV.