Neyðarkall frá fiskibáti barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar um klukkan fimm í morgun. Báturinn var þá staddur um hálfa sjómílu undan Svörtuloftum á Snæfellsnesi.
Um borð í bátnum voru tveir en þeir tjáðu varðstjórum stjórnstöðvar að báturinn væri stjórnvana og ræki með sjávarfallastraumi norður með landinu, samkvæmt heimasíðu Gæslunnar.
Þegar í stað var þyrlusveit Landhelgisgæslunnar kölluð út auk sjóbjörgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Snæfellsnesi.
Fyrst á vettvang var áhöfnin á björgunarskipinu Björgu frá Rifi en klukkan 5:45 var fiskibáturinn kominn í tog hjá áhöfn björgunarskipsins. Var þá þyrlusveit Landhelgisgæslunnar afturkölluð og hélt björgunarskipið með fiskibátinn á Rif.
Landhelgisgæslan hefur tilkynnt Rannsóknarnefnd samgönguslysa um atvikið.