- Auglýsing -
Lögregla stöðvaði um fimmleytið í dag í það minnsta tvo menn sem slógust harkalega rétt við leikskólann Mánabrekku á Seltjarnarnesi, skammt frá Eiðistorgi.
Mennirnir eru sagði hafa verið alblóðugir eftir átökin.
Fréttablaðið birtir myndband af atvikinu og greinir frá því að auk lögreglu hafi sjúkrabíll komið á vettvang. Svo virðist sem þrír menn hafi ógnað þeim fjórða.
Lögregla verst allra fregna af málinu