Sunnudagur 27. október, 2024
-1.6 C
Reykjavik

Bogi segir flugmennina hafa sótt um vinnu fyrir löngu: „Nú erum við í ráðning­ar­ferli á ný“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir nýja flugmenn hafa sótt um störf áður.

Miklar sviptingar á íslenskum flugmarkaði áttu sér stað í gær en þá sögðu 14 flugmenn Play upp störfum til þess að geta hafið störf hjá Icelandair. Forstjóri Icelandair heldur því fram að allir flugmennirnir hafi sótt um störf fyrir löngu síðan og fengið að vera á biðlista eftir nýjum störfum skyldu þau losna.

„Þegar ferl­inu lauk síðastliðinn vet­ur, höfðum sam­band við þá sem upp­fylltu okk­ar hæfnis­kröf­ur og spurðum hvort við mætt­um hafa sam­band við þá næst þegar kæmi til ráðninga. Það var fyrst og fremst gert til að þeir þyrftu ekki að hefja um­sókn­ar­ferli upp á nýtt ef og þegar ráðið yrði í nýj­ar stöður hjá okk­ur,“ sagði Bogi Nils um málið í samtali við mbl.is.

„Nú erum við í ráðning­ar­ferli á ný og þá var haft sam­band við þenn­an sama hóp til að kanna hvort þessi til­teknu flug­menn hefðu áhuga á að koma til starfa núna, sem flest­ir völdu að gera,“ og verður athyglisvert að sjá hvort þetta hafi teljandi áhrif á Play.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -