Viljayfirlýsing á milli Reykjavíkurborgar, heilbrigðisráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis, innviðaráðuneytis, Landspítala, Landhelgisgæslu og stýrihóps um skipulag Landspítala um deiliskipulag annars áfanga uppbyggingar Landspítalans hefur verið undirrituð.
Felur hún í sér að fundinn verði staður, í Nauthólsvík, fyrir þyrlupall sem taki á móti stærstu gerð af björgunarþyrlum. Rúv greindi frá.
Staðsetningin í Nauthólsvík tekur mið af skömmu flutningstíma milli þyrlupalls og bráðamóttöku. Þar sem að jafnaði séu sjúkraflutningar í þyrlum vegna mikið slasaðra eða alvarlega veikra.
Þá bjóði staðsetningin í Nauthólsvík upp á enn frekari þróun á Hringbrautarsvæðinu er lúti að uppbyggingar skipulags Landspítala og deiliskipulags lóðar hans.
Nauðsynlegt sé að öryggissvæðið við þyrlupallinn sé samkvæmt alþjóðlegum reglum og að litlar sem engar hindranir séu í nágrenni þyrlupallsins. Þannig að framtíðarþróun bygginga og gróðurs auki ekki hindranir fyrir flug að og frá pallinum.
Þá þarf þyrlupallurinn að leyfa lendingar á öllu tímum sólarhrings og þarf hann að geta tekið á móti tveimur þyrlum samtímis, ef að um til dæmis hópsslys sé að ræða.