Fimmtudagur 30. janúar, 2025
1.8 C
Reykjavik

Borgin tekur þarfir strætó fram yfir öryggi barna í Úlfarsárdal

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Reykjavíkurborg hefur hafnað tillögu Sjálfstæðismanna sem snéri að bæta öryggi gangandi vegfaranda í Úlfársdal en DV greindi fyrst frá málinu. Var tillagan lögð fram eftir að keyrt var á ungan dreng á gatnamótum Úlfarsbrautar og Urðarbrunns í fyrra.

Mikil óánægja hefur ríkt meðal íbúa í hverfinu og er það vegna hringtorgs sem er á gatnamótunum en það er varla sýnileg í myrkri eða snjó og keyra margir bílstjórar yfir hringtorgið viljandi og óviljandi. Telja einhverjir að um hættulegasta hringtorg borgarinnar sé að ræða.

Ekki hlustað á íbúa

Vildu Sjálfstæðismenn að úr þessum ruglingi yrði bætt en var því hafnað af meirihlutanum. „Vegna vinstribeygju strætó á þessum stað er ekki æskilegt að hafa þarna hefðbundið hringtorg,“ sagði í bókun meirihlutans. „Talið er að forgangur Úlfarsbrautar fram yfir Urðarbrunn valdi auknum umferðarhraða og þar með auka líkur á alvarlegri umferðarslysum. Því er tillagan felld. Slys á árinu 2024 virðist ekki hafa haft með útfærslu gatnamótanna að gera.“

„Fjölmargir íbúar hafa óskað eftir úrbótum á umræddum gatnamótum þar sem ekki er skýrt hvort þar sé um hringtorg eða venjuleg gatnamót að ræða. Óvissa um slíkt hefur ítrekað valdið misskilningi og hættu,“ sagði í bókun Sjálfstæðismanna.

Rétt er að taka fram til þess að komast í grunnskóla, íþróttahús, bókasafn og sundlaug hverfisins þurfa mörg börn að labba yfir gangbrautina sem er upp við þetta hættulega hringtorg.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -