Brimborg sendi frá sér tilkynningu þess efnis að lækkað hefur verið verðið á hraðhleðslustöð þeirra á Flugvöllum 8 í Reykjanesbæ. Taxtinn er nú hinn sami og rafbílaeigendum býðst í heimahleðslu eða 18.9 krónur per kílówatt stund. Í tilkynningunni segir:
„Almannavarnir mælast til að rafbílaeigendur hlaði ekki heimavið í núverandi ástandi og hvetja frekar til þess að nota hraðhleðslu eða almenningshleðslur. Hraðhleðslustöð Bílorku er afkastamikil 600 kW stöð sem getur hlaðið 8 bíla í einu og er opin öllum rafbílaeigendum með því að hlaða niður e1 appinu.“
Almannavarnir ríkislögreglustjóra hafa biðlað til íbúa á Reykjanesi að lágmarka nýtingu rafmagns og hlaða ekki rafbílana heima fyrir, heldur nota hverfahleðslur eða hraðhleðslur sem á svæðinu eru.